10.09.2024 23:13Norðan hvassviðri og vetrarlegt i kortunumNorðan hvassviðri kalt og snjór á Akureyri i morgun mynd þorgeir Baldursson Varskipið Þór við bryggju á Akureyri i morgun mynd þorgeir Baldursson Leiðindaveður hrellir Akureyringa og aðra Norðlendinga í dag eins og jafnan þegar blessaðar haustlægðirnar reka inn nefið. Sú sem nú gerir vart við sig býður upp á norðan rok, rigningu eða slyddu innan bæjarmarkanna og snjókomu til fjalla. Þorgeir Baldursson var á ferðinni í morgun með myndavélina og færir lesendum hér nokkur sýnishorn. Hlíðarfjall klæddist þunnum snjóhvítum vetrarklæðum í nótt og Vaðlaheiði sömuleiðis, en hvorki er þó tímabært að sækja skíðin í geymsluna né nagladekkin, þótt líklega styttist í að skynsamlegt verði að huga að dekkjaskiptum. Þeir sem aka á negladekkjum yfir vetrartímann verða reyndar að hafa í huga að þau má ekki setja undir ökutækið fyrr en 1. nóvember nema aðstæður beinlínis krefjist þess, eins og stundum er tekið til orða þegar sveigja þarf reglurnar. Í morgun hefur norðanáttin mælst 10 metrar á sekúndu eða ríflega það á Akureyri og hitamælar sýna fáeinar gráður fyrir ofan núllið. Gul viðvörun er í gildi til klukkan þrjú síðdegis í dag en eftir það ætti veðrið að skána. Vetrarferð er hér og þar um Norður- og Norðausturland. Á vef Vegagerðarinnar segir meðal annars:
Skrifað af Þorgeir |
Eldra efni
Um mig Nafn: Þorgeir BaldurssonFarsími: 8620479Tölvupóstfang: thorgeirbald62@gmail.comHeimilisfang: Reynihlið 15 D 604 HörgárbyggðStaðsetning: HörgárbyggðUm: Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist SjávarútvegiTenglar
Flettingar í dag: 852 Gestir í dag: 24 Flettingar í gær: 3737 Gestir í gær: 72 Samtals flettingar: 1060267 Samtals gestir: 50927 Tölur uppfærðar: 21.12.2024 12:54:16 |
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is